Starfsfólk
Styrmir Bolli Kristjánsson
Netfang: styrmir@kaupfjelag.com
Aðstoðarkaupfjelagsstjóri,, prentsmiður, stafrænn markaðsfræðingur og fleira
Styrmir hefur starfað við grafíska hönnun og prentmiðlun frá því á síðast öld, sem hljómar reyndar mun verr en að segja frá 1997. Hann hefur á þeim tíma sankað að sér reynslu af grafískri hönnun, umbroti, myndvinnslu, prentframleiðslu, WordPress, sölu, ráðgjöf og samskiptum við viðskiptavini.
Síðustu ár hefur stafræna hliðin tekið meira pláss. Styrmir er viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur frá Akademias og vinnur meðal annars með samfélagsmiðla, efnisgerð, tölvupóstmarkaðssetningu, SEO, stafrænar auglýsingar og greiningu. Gervigreind er síðan orðin hluti af verkfærakistunni, ekki til að hugsa eða vinna fyrir hann heldur til að hjálpa honum greina og framkvæma hraðar.
Sterkasta hlið Styrmis er líklega að tengja þetta allt saman. Hönnun, markaðssetning, tækni og sala eru sjaldnast aðskildir hlutir í raunverulegum verkefnum. Hann hefur gaman af að finna út hvað þarf að gera, hvernig best sé að gera það og síðan einfaldlega koma því í verk.
Hann drekkur samt ekki kaffi. Einhvers staðar verður maður að draga mörkin.