Hallur Guðmundsson – kaupfjelag.com

Starfsfólk

Hallur Guðmundsson

Hallur Guðmundsson

Símanúmer: 7665075

Netfang: hallur@kaupfjelag.com

Kaupfjelagsstjóri, hönnuður, textasmiður, þýðandi og þulur

Hallur útskrifaðist með sveinsbréf í prentsmíð / grafískri miðlun frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1998. Hann hefur unnið við og fiktað við alls kyns hönnun, grafíska vinnslu og annað í þeim dúr alveg aftur til 1986, þegar taumlaus áhugi hans á framsetningu efnis varð að veruleika. En þegar það fór að verða auðveldara að gera „eitthvað fínt í tölvunni“ á fór að halla undan fæti hjá Halli. Hann hafði unnið hjá DV, Hausverk auglýsingastofu og Víkurfréttum þegar hann stóð uppi án verkefna og vinnu. Hann tók þó alltaf að sér alls kyns verkefni meðfram öðrum störfum. Árið 2017 útskrifaðist Hallur með B.A. í Miðlun & almannatengslum frá Háskólanum á Bifröst og árið 2024 með M.Ed gráðu í kennslu list- og verkgreina með tónmennt sem sérgrein. Hallur hafði unnið fulla vinnu með náminu frá 2019. Á haustdögum 2024 tók Hallur þá ákvörðun að hætta kennslu og freista gæfunnar á hinum frjálsa markaði harksins. Það leiddi það af sér að í nóvember 2025 varð Kaupfjelag Nærsveitamanna að veruleika og Hallur hefur verið kaupfjelagsstjóri þar síðan þá. Hallur elskar tónlist, ljósmyndun, kaffi og bjór (svona af og til í hófi). Hallur er síðhærður og stundum með skegg af því hann langar til þess. Svo er hann líka svo ákaflega jákvæður og hress.

Heyrðu, kaffið er farið að kólna!

– Hallur

Og hvað skyldi kallinn nú hafa lært í gegnum tíðina?

Iðnskólinn í Reykjavík
Háskólinn á Bifröst
Háskóli Íslands

Til baka