Fimm ráð sem skipta máli þegar auglýst er á Meta
Það er auðvelt að opna Meta Ads Manager, setja inn fallega mynd og ýta á „Publish“. Það er miklu erfiðara að ná raunverulegum árangri. Á hverjum degi eyða fyrirtæki háum fjárhæðum í auglýsingar sem skila litlu eða engu, ekki vegna þess að Meta virki ekki, heldur vegna þess að grunnurinn er ekki réttur.
Eftir að hafa fylgst með fjölmörgum herferðum er eitt orðið ljóst: árangur byggist sjaldnast á einhverju einu snjöllu bragði. Hann byggist á því að gera nokkra mikilvæga hluti vel og endurtaka þá stöðugt. Hér eru fimm ráð sem ég tel skipta mestu máli.
1. Byrjaðu á markmiðinu, ekki auglýsingunni
Algengustu mistökin eru að fólk byrjar á því að hugsa um útlit auglýsingarinnar. Hvaða mynd á að nota? Hvaða litir virka best? Hvernig á textinn að hljóma? Betri spurning er einfaldlega: Hvað á þessi auglýsing að gera? Á hún að selja vöru? Safna fyrirspurnum? Fá fólk til að bóka tíma? Eða byggja upp vitund um vörumerkið?
Þegar markmiðið er skýrt verður allt annað einfaldara. Þá verður auðveldara að velja rétta herferð, skrifa markvissan texta og meta hvort auglýsingin hafi raunverulega skilað árangri. Ef markmiðið er óljóst er hætt við að auglýsingin verði það líka.
2. Þekktu markhópinn betur en samkeppnisaðilarnir
Það er freistandi að reyna að höfða til allra. Vandamálið er að auglýsing sem talar til allra talar yfirleitt ekki sterkt til neins.
Áður en herferð fer í loftið þarf að svara nokkrum einföldum spurningum. Hver er líklegastur til að kaupa? Hvaða vandamál er viðkomandi að reyna að leysa? Hvað skiptir hann mestu máli þegar ákvörðun er tekin? Því betur sem þú skilur markhópinn, því auðveldara verður að skrifa texta sem hittir í mark.
Meta hefur einnig þróast mikið á síðustu árum. Í stað þess að eyða klukkustundum í mjög þröngar markhópastillingar skilar oft betri árangri að leyfa kerfinu meira svigrúm og leggja meiri vinnu í skapandi efni sem höfðar til rétta fólksins.

3. Skapandi efnið ræður úrslitum
Margir leita að leyndarmálinu í stillingum auglýsingakerfisins. Raunin er sú að notandinn sér ekki stillingarnar. Hann sér myndbandið, myndina og textann. Þess vegna er skapandi efnið oft stærsti árangursþátturinn.
Fyrstu sekúndurnar skipta mestu máli. Ef auglýsing nær ekki athygli strax heldur fólk einfaldlega áfram að fletta. Það þýðir að skilaboðin þurfa að vera skýr frá fyrstu stundu. Sýndu vöruna í notkun, sýndu lausnina á vandamáli eða byrjaðu á spurningu sem vekur forvitni.
Það borgar sig líka að prófa mismunandi útgáfur, gera svokallað A/B testing. Stundum skilar ný mynd eða önnur fyrirsögn tvöföldum árangri án þess að auglýsingabudgetið hækki um eina krónu.
4. Mældu árangurinn og treystu gögnunum
Það er erfitt að bæta það sem ekki er mælt. Of margir meta herferðir út frá því hvort þeim sjálfum finnist auglýsingin flott. Það segir hins vegar lítið um hvort hún skili viðskiptum.
Góð Meta-herferð byggir á traustri mælingu. Pixel, Conversion API og rétt uppsettir atburðir gera fyrirtækjum kleift að sjá hvaðan salan kemur og hvað raunverulega skilar árangri.
Í stað þess að einblína á fjölda „lækka“ er skynsamlegra að fylgjast með mælikvörðum eins og kostnaði á viðskipti, smellihlutfalli og ávöxtun auglýsingafjár.
Gögnin segja oft allt aðra sögu en innsæið. Það er einmitt ástæðan fyrir því að þau eru svona verðmæt.
5. Prófaðu stöðugt – aldrei gera ráð fyrir að þú vitir svarið
Bestu auglýsendurnir eru ekki þeir sem giska rétt í fyrstu tilraun. Þeir eru einfaldlega duglegastir að prófa.
Prófaðu mismunandi fyrirsagnir. Prófaðu styttri myndbönd og lengri. Prófaðu aðra upphafssetningu eða nýtt tilboð. Jafnvel litlar breytingar geta haft óvænt mikil áhrif.
Það sem virkaði í síðasta mánuði þarf ekki endilega að virka í dag. Hegðun neytenda breytist, samkeppnin breytist og Meta breytir reglulega reikniritinu sínu. Þess vegna er stöðug þróun hluti af vinnunni, ekki verkefni sem klárast einu sinni.
Að lokum
Það er auðvelt að halda að árangur í Meta-auglýsingum snúist um réttu stillingarnar eða stærra auglýsingabudget. Reynslan sýnir hins vegar að það eru grunnatriðin sem skipta mestu máli.
Skýr markmið, góður skilningur á markhópnum, sterkt skapandi efni, áreiðanleg mæling og viljinn til að prófa nýjar leiðir eru þeir þættir sem aðgreina herferðir sem skila raunverulegum árangri frá þeim sem eyða bara fjármagni.
Þegar þessir fimm þættir vinna saman verða Meta-auglýsingar ekki lengur tilviljunarkennd tilraun. Þær verða markviss fjárfesting sem byggir á stefnu, gögnum og stöðugum umbótum. Það er yfirleitt þar sem besti árangurinn næst.
Styrmir Bolli Kristjánsson
Aðstoðarkaupfjelagsstjóri