Starfsfólk
Ólöf Erla Einarsdóttir
Grafískur hönnuður og gleðisprengja
Símanúmer: 8681445
Netfang: oloferla@svart.design
Ólöf Erla útskrifaðist með BA í grafískri hönnun frá LHÍ árið 2002. Hún starfaði hjá RÚV í 11 ár við hönnun og grafík fyrir vef og sjónvarp og vann einnig með mörgum ástsælum listamönnum þjóðarinnar að hönnun hljómplatna, plakata, myndbanda og auglýsinga. Eftir RÚV fór hún til 365 og síðar NOVA áður en hún stofnaði eigið fyrirtæki, SVART, og hóf sjálfstæð störf. Meðfram þessu hefur Ólöf haldið sýningar og skapað ævintýraheima úr hversdagslegum ljósmyndum.
Á upphafsmánuðum 2026 kíkti kaupfjelagsstjórinn í kaffi til hennar og hefur síðan þá verið í sömu skrifstofu.
Við skulum hafa þetta gaman!
– Ólöf Erla